Fréttasafn
Fréttir frá Brimveri/Æskukoti
Ný skólanámskrá og starfsáætlun Strandheima
Ný skólanámskrá Strandheima 2026–2030 er nú komin út og aðgengileg á heimasíðu leikskólans. Þar er fjallað um leiðarljós, áherslur og faglegt starf Strandheima næstu árin. Einnig hefur starfsáætlun Strandheima fyrir skólaárið 2026–2027 verið birt á heimasíðunni. Þar má finna upplýsingar […]
Aðalfundur foreldrafélags Strandheima – 29. september kl. 20:00
Aðalfundur foreldrafélags Strandheima verður haldinn í sal leikskólans í Æskukoti, þriðjudaginn 29. september kl. 20.00. Við viljum hvetja alla foreldra frá báðum starfsstöðum til að mæta og hafa áhrif á starfið Kveðja, stjórn Foreldrafélags Strandheima
Leikurinn í brennidepli í Strandheimum
Í Strandheimum verður leikurinn í brennidepli í faglegu starfi næstu misseri. Leikurinn er meginnámsleið barna og í vetur ætlum við að beina sjónum sérstaklega að því hvernig við getum skapað börnum enn betri skilyrði til leiks í daglegu starfi. Við […]
Sumarhátíðir Strandheima
Sumarhátíðir Strandheima verða kl. 14-15:30 dagana 11. júní í Æskukoti og 25. júní í Brimveri. Við vonum að sem allra flestir foreldrar og systkin, ömmur og afar sjái sér fært að koma og njóta með okkur. Bestu kveðjur úr Strandheimum. […]
Vinátta í nærumhverfinu
Síðustu ár höfum við í Strandheimum verið með verkefni í gangi hjá elstu nemendum leikskólans. Verkefnið köllum við Vinátta í nærumhverfinu. Felst það í að elstu börn leikskólans hittast einu sinni í mánuði, til skiptis á Brimveri á Eyrarbakka og […]
Slysavarnadeildin Björg færir Strandheimum sjúkrakassa að gjöf
Föstudaginn 29. ágúst tók leikskólinn á móti veglegri gjöf frá Slysavarnadeildinni Björg á Eyrarbakka. Var gjöfin fjórir sjúkrakassar sem sérstaklega eru ætlaðir börnum. Drífa Pálín Geirsdóttir kom fyrir hönd slysavarnadeildarinnar og færði okkur sjúkrakassana sem verða staðsettir inni á hverri […]
Brimver 50 ára 17. mars 2025
Í tilefni af 50 ára afmæli leikskólans Brimvers á Eyrabakka verður opið hús mánudaginn 17. mars milli klukkan 15 og 17. Gaman væri að sjá sem flesta sem hafa komið að Brimveri í gegnum árin í leik og starfi. Kveðja […]
Leikskólakennari óskast til starfa
Langar þig að koma í vinnu hjá okkur? Okkur vantar leikskólakennara á Æskukot, starfsstöð okkar á Stokkseyri, og er auglýsing komin inn á Alfreð, sjá á meðfylgjandi hlekk. Skoðið málið og verið í sambandi Leikskólakennarar hjá leikskólanum Strandheimum | Leikskólinn […]
Skipulagsdagur mánudaginn 4. nóvember og leikskólinn lokaður
Við minnum á að mánudaginn 4. nóvember er leikskólinn lokaður vegna skipulagsdags. Sjáumst á þriðjudaginn.
Ópera fyrir leikskólabörn
Í vikunni komu til okkar tveir óperusöngvarar, Alexandra Chernyshova, tónlistarskólastjóri í Vík – sópran og tónskáld og Jón Svavar Jósefsson – baritón og hljóðmaður og fluttu fyrir börnin á eldri deildum lög úr óperuballettnum „Ævintýrið um norðurljósin“. Markmið verkefnisins er […]
Virkni aftur komin á heimasíðuna
Í dag var sett inn á heimasíðuna skóladagatalið fyrir árið 2024-2025 Einnig voru myndir af starfsmönnum ásamt nöfnum þeirra uppfærð Vonandi verður þetta bara byrjunin á nýju lífi á síðunni okkar! Með kærri kveðju, Birna Guðrún leikskólastjór
Málþroski barna; fræðsluefni
Skólaþjónusta Árborgar hefur gefið út fræðusluefni um málþroska barna sem hægt er að nálgast hér og hvetjum við áhugasama til að kynna sér það nánar. Eins má finna ýmis ráð varðandi málörvun inni á heimasíðu Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands. […]