Heilsueflandi leikskóli
Strandheimar er heilsueflandi leikskóli þar sem vellíðan, heilbrigði og góðar lífsvenjur eru samofnar daglegu starfi. Markmiðið er að skapa umhverfi sem stuðlar að líkamlegri, andlegri og félagslegri vellíðan barna og starfsfólks og leggja góðan grunn að heilbrigðum lífsháttum.
Í daglegu starfi leggjum við áherslu á hreyfingu, útiveru, holla næringu, hvíld, geðrækt og góð samskipti. Nærumhverfi Eyrarbakka og Stokkseyrar býður upp á fjölbreytt tækifæri til hreyfingar, útináms og upplifunar og nýtum við það sem mikilvægan hluta af leik og námi barnanna.
Heilsuefling snýst einnig um tengsl, öryggi og að tilheyra samfélagi. Samstarf við fjölskyldur og nærsamfélagið er því mikilvægur þáttur í starfinu og lögð er áhersla á að börnin fái tækifæri til þátttöku, samskipta og jákvæðrar samveru.
Heilsueflandi starf fellur vel að leiðarljósum Strandheima – Vellíðan, Sköpun og Virðing – og tengist náið öðrum áherslum okkar, meðal annars Jákvæðum aga og Vináttu í nærumhverfinu.