Foreldrafélag Strandheima
Hlutverk foreldrafélags:
- Vera samstarfsvettvangur foreldra - allir foreldrar eru hluti af foreldrafélagi leikskólans.
- Stuðla að góðum skólaanda m.a. með því að vinna að öflugu félagslífi í leikskólanum.
- Stuðla að auknum kynnum barna, foreldra og starfsmanna skólans.
- Koma á framfæri sjónarmiðum og hugmyndum foreldra varðandi leikskólastarfið til skólastjórnenda og foreldraráðs.
- Foreldraráð samanstendur af stjórn foreldrafélagsins.
Verkefni foreldrafélags:
- Skipuleggja viðburði í samstarfi við leikskólann.
- Styðja og hvetja deildarfulltrúa til að efla deildaranda og foreldrasamstarf á hverri deild.
- Koma á umræðu- og fræðslufundum fyrir foreldra um uppeldis- og leikskólamál.
- Veita leikskólanum lið í að bæta aðstæður til leiks og náms.
- Sitja fundi með foreldraráði og skólastjórnendum um skólastarfið.
- Taka þátt í samstarfi við önnur foreldrafélög og samtök foreldra á sínu svæði.
- Taka þátt í landsamtökum foreldra.
Foreldrafélög voru tvö við leikskólann allt til ársins 2017. Stjórn foreldrafélaganna skipast úr röðum foreldra og á hver deild að eiga fulltrúa í stjórn félagsins og skipta þeir með sér verkum. Á aðalfundi var samþykkt að kjósa í stjórn fyrir hvert nýtt skólaár á aðalfundi sem haldinn verði í september ár hvert.
Foreldrafélagið er með facebook-hóp sem ber heitið Foreldrafélag Strandheima | Facebook og hvetjum við alla foreldra til þess að ganga inn í hann.
Stjórn foreldrafélagsins 2026-2027
Formaður
Viktoría Ýr Norddahl, Kötlusteini og Merkisteini
Gjaldkeri
Edda Bára Höskuldsdóttir, Fiskakletti og Bátakletti
Ritari
Una Guðrún Gautadóttir, Kötlusteini og Merkisteini
Meðstjórnendur
Nína Guðrún Guðjónsdóttir, Fiskakletti og Bátakletti
Pernille Ahlmann Jensen, Bátakletti
Selma Rut Ólafsdóttir, Kötlusteini
Snæfrost Sara Arnar, Bátakletti