Áætlanir og verklagsreglur
Áætlunin lýsir viðbrögðum leikskólans við áföllum og slysum. Hún er leiðarvísir fyrir starfsfólk um hvernig brugðist er við og hvernig stuðningi við börn og fjölskyldur er háttað.
Barnavernd Árborgar vinnur að því að tryggja öryggi og velferð barna og veita börnum og fjölskyldum nauðsynlegan stuðning. Hlutverk hennar er meðal annars að styðja foreldra í uppeldishlutverkinu og bregðast við áhyggjum af aðstæðum barna, með hagsmuni barnsins að leiðarljósi.
Nánari upplýsingar um barnavernd Árborgar og hvernig koma má áhyggjum af barni á framfæri
Jafnréttisáætlun leikskóla Árborgar 2025–2028 tekur til barna, foreldra og starfsfólks. Hún leggur áherslu á jöfn tækifæri, virðingu fyrir fjölbreytileika og jákvæð samskipti, þannig að allir fái að njóta sín í leikskólasamfélaginu.
Lausnateymi leikskóla Árborgar er samstarfsvettvangur leikskóla, sérfræðinga fjölskyldusviðs og heilsugæslu. Þar er leitað lausna þegar áhyggjur vakna af þroska, líðan, hegðun eða samskiptum barns. Í samvinnu við foreldra er farið yfir stöðu barnsins og leitað leiða til að veita viðeigandi stuðning.
Í bruna- og rýmingaráætlun Strandheima er fjallað um viðbrögð við eldsvoða, rýmingarleiðir og söfnunarstaði í Brimveri og Æskukoti. Markmið áætlunarinnar er að tryggja örugga og skipulega rýmingu og stuðla að öryggi barna og starfsfólks.
