Fatahólfin
Leikur og starf í leikskólanum getur verið bæði fjörugt og skapandi og því er mikilvægt að börnin séu í þægilegum fötum sem mega verða fyrir hnjaski og óhreinindum.
Aukaföt
Fyrir ofan hólf barnanna eru körfur fyrir aukaföt. Gott er að hafa þar nægan fatnað til skiptanna ef börnin blotna, óhreinka sig eða önnur óhöpp verða.
Gott er að hafa:
- nærföt
- sokka
- gammósíur eða sokkabuxur
- bol
- peysu
- buxur
Við leggjum áherslu á að börnin fái tækifæri til að æfa sig í að klæða sig sjálf og taka smám saman meiri ábyrgð á eigin fatnaði, í samræmi við aldur og þroska. Ef peysan eða buxurnar snúa stundum öfugt er það oft merki um mikilvægt skref í átt að auknu sjálfstæði.
Útiföt
Við förum út alla daga og því er mikilvægt að fatnaður og skóbúnaður hæfi veðri hverju sinni.
Gott er að hafa:
- hlýja peysu og buxur
- kuldagalla
- regnföt
- úlpu
- húfu
- vettlinga
- ullarsokka
- stígvél og kuldaskó
Gott er að hafa auka húfu, vettlinga og ullarsokka þegar veður kallar á.
Gott að hafa í huga
Vinsamlegast merkið fatnað og skó barnsins vel svo auðveldara sé að koma öllu á réttan stað.
Foreldrar fylgjast með aukafötum barnsins og bæta í körfuna eftir þörfum. Gott er að líta daglega í hólfið, taka blaut föt heim og ganga úr skugga um að nægur fatnaður sé til staðar fyrir næsta dag.
Leikskólinn lánar ekki fatnað.
Á föstudögum eru fatahólfin tæmd og allt tekið með heim nema það sem geymt er í körfunni. Vegna takmarkaðs pláss er ekki hægt að geyma töskur í hólfunum yfir vikuna.