Jákvæður agi

Í Strandheimum vinnum við í anda Jákvæðs aga, þar sem áhersla er lögð á góð tengsl, gagnkvæma virðingu, góðvild og festu. Markmiðið er að skapa öruggt og hlýlegt samfélag þar sem börn upplifa að þau tilheyri, hafi rödd og geti haft áhrif.

Í daglegu starfi styðjum við börnin við að þekkja og tjá tilfinningar sínar, eiga jákvæð samskipti, leysa ágreining og finna lausnir í samvinnu við aðra. Mistök eru hluti af námi og börnin fá tækifæri til að æfa félagsfærni, sjálfstæði og ábyrgð í öruggu umhverfi.

Hlutverk starfsfólks er að vera góðar fyrirmyndir, byggja upp traust tengsl og mæta börnum af virðingu, hlýju og festu. Áhersla er lögð á lausnir fremur en refsingu og að börnin fái leiðsögn og stuðning til að takast á við þær áskoranir sem upp koma.

Jákvæður agi fellur vel að leiðarljósum Strandheima – Vellíðan, Sköpun og Virðing – og styður við þá sýn okkar að sterk tengsl og öryggi séu mikilvægur grunnur að leik, námi og þroska barna.