Um skólann

brimver-eyrarbakki
img_9617

Brimver
Túngötu 39 v. Vinatorg | 820 Eyrarbakka
480 6352
strandheimar@arborg.is

Æskukot
Blómsturvöllum 1 | 825 Stokkseyri
480 6352
strandheimar@arborg.is

Leikskólastjóri: Birna Guðrún Jónsdóttir | birnagj@arborg.is
Aðstoðarleikskólastjóri: Eva Björk Friðjónsdóttir | evabf@arborg.is

Leikskólinn Strandheimar er starfræktur á tveimur starfsstöðum, Brimveri á Eyrarbakka og Æskukoti á Stokkseyri. Leikskólinn er fjögurra deilda og eru eldri og yngri deild á sitthvorri starfsstöðinni.

Leikskólinn starfar eftir Aðalnámskrá leikskóla og lögum um leikskóla, auk þess að vera Heilsueflandi leikskóli og Skóli á grænni grein.

 

Saga leikskólans

Leikskólarnir Brimver á Eyrarbakka (1975) og Æskukot á Stokkseyri (1983) voru sameinaðir í einn leikskóla, Heilsuleikskólinn Brimver/Æskukot, árið 2011. Leikskólinn starfaði eftir Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur allt til haustsins 2022 og bar titilinn Heilsuleikskóli fram að því.

Skólaárið 2021-2022 hófst góð og ígrunduð vinna innan leikskólans í að samþætta stefnur skólans og var sú ákvörðun tekin að hætta með Heilsustefnuna og einblína þess í stað nánar á áherslur og markmið Heilsueflandi leikskóla og Skóla á grænni grein.

  • Helsueflandi leikskóli er á vegum Embættis landlæknis og er leggur stefnan sérstaka áherslu á að vinna með átta lykilþætti sem tengjast skólastarfinu. Þeir eru: hreyfing, mataræði, geðrækt, öryggi, tannheilsa, fjölskylda, nærsamfélag og starfsfólk. Leikskólinn vinnur að markmiðum lykilþáttanna allt árið um kring og eru starfshættirnir í átt að settum markmiðum endurmetnir reglulega.
  • Leikskólinn hefur verið þátttakandi í verkefninu Skóli á grænni grein frá árinu 2009 og hefur hlotið Grænfánann alls 6 sinnum fyrir góða frammistöðu í menntun til sjálfbærrar þróunnar og fyrir að leggja sitt af mörkum til þess að efla og bæta umhverfismál innan skólans og í nærsamfélaginu.

Vorið 2022 var gerð nafnabreyting á heiti leikskólans og ber hann nú eitt nafn í stað tveggja. Nafnið Strandheimar vísar til strandlengjunnar sem tengir þorpin saman og vísar endingin –heimar til fleiri leikskóla í Árborg, en þar eru nú starfræktir fjórir leikskólar sem enda á –heimar; Álfheimar, Goðheimar, Hulduheimar og Jötunheimar.

Brimver

Æskukot

Leiðarljós leikskólans

Leiðarljós Strandheima eru Vellíðan - Sköpun - Virðing og eru þau leiðarvísir að þeim markmiðum sem við viljum að séu gegnum gangandi í leikskólastarfinu og samskiptum innan hans. Það er mikilvægt að stórum sem smáum líði vel, að virðing sé borin fyrir náunganum og að sköpunarkraftur einstaklingssins fái notið sín.

Það er ósk okkar að börnin:

  • Kynnist leikgleði
  • Öðlistfærni í samskiptum
  • Læri að meta hreyfingu, útiveru og þá ánægju sem hvoru tveggja veitir
  • Fái frelsi til sköpunar í leik og starfi
  • Upplifi viðurkenningu og væntumþykju

Hlutverk kennarans er að vera góð fyrirmynd, grípa tækifærið og vera minnugur þess að leikurinn er námsleið leikskóla.

 

Heilsu- og umhverfissáttmáli Strandheima