Sérkennsla
Sérkennslustjóri Strandheima:
Elísabet Ómarsdóttir
Sérkennsla og stuðningur
Í Strandheimum leggjum við áherslu á að öll börn fái stuðning við hæfi og tækifæri til að taka þátt í leik og daglegu starfi á eigin forsendum. Stuðningurinn tekur mið af styrkleikum, áhuga og þörfum hvers barns og er skipulagður í nánu samstarfi við foreldra.
Hlutverk sérkennslustjóra
Sérkennslustjóri heldur utan um sérkennslu og stuðning í samvinnu við deildarstjóra, starfsfólk og foreldra. Stuðningur getur farið fram í daglegum aðstæðum og leik, í minni hópum eða einstaklingslega eftir þörfum. Fyrir þau börn sem þurfa markvissan stuðning er gerð einstaklingsnámskrá í samstarfi við foreldra þar sem fram koma markmið, leiðir og eftirfylgni.
Sérkennslustjóri hefur einnig umsjón með teymisfundum og samstarfi við skólaþjónustu Árborgar og aðra sérfræðinga sem koma að málefnum barnsins.
Foreldrar sem hafa spurningar eða áhyggjur af þroska, líðan eða þátttöku barnsins síns eru hvattir til að hafa samband við deildarstjóra eða sérkennslustjóra.
Tengiliður farsældar
Sérkennslustjóri er jafnframt tengiliður farsældar í Strandheimum. Foreldrar geta leitað til hans eftir upplýsingum og aðstoð við að fá viðeigandi stuðning fyrir barnið sitt. Tengiliður vinnur með foreldrum að því að samræma þjónustu þegar þörf er á, með hagsmuni og vellíðan barnsins að leiðarljósi.
Skólaþjónusta Árborgar
Skólaþjónusta Árborgar veitir leik- og grunnskólum sveitarfélagsins sérfræðiþjónustu. Hún styður við börn og fjölskyldur þeirra og veitir starfsfólki skóla ráðgjöf. Áhersla er lögð á samstarf þeirra fagaðila sem koma að þjónustu við barnið, svo stuðningurinn mæti þörfum þess.
Lausnaleit innan Strandheima
Lausnaleitarfundir eru haldnir hálfsmánaðarlega innan leikskólans og eru fyrsta skrefið í að mæta börnum sem þurfa aukinn stuðning. Þar fer starfsfólk yfir þarfir barnanna, leitar leiða til að styðja þau í leik og daglegu starfi og ákveður næstu skref og eftirfylgni. Unnið er í samvinnu við foreldra með styrkleika, þátttöku og vellíðan barnsins að leiðarljósi.
Lausnateymi leikskóla Árborgar
Þegar þörf er á frekari ráðgjöf eða þjónustu er leitað til lausnateymis leikskóla Árborgar í samvinnu við foreldra. Teymið er samstarfsvettvangur leikskóla, sérfræðinga fjölskyldusviðs og heilsugæslu. Lausnateymisfundir eru haldnir reglulega þar sem málefni barna eru rædd, leitað leiða til stuðnings og tilvísanir og beiðnir um þjónustu lagðar fyrir.
Skólaþjónusta Árborgar
Ráðhúsinu, Austurvegi 2 | 800 Selfoss
Opið mán-fim kl. 9-16, fös kl. 9-12
480 1900
skolathjonusta@arborg.is
Skólaþjónusta Árborgar er sérfræðiþjónusta við leik- og grunnskóla í sveitarfélaginu. Leiðarljós skólaþjónustunnar er að þjóna fjölbreyttum þörfum barna, foreldra og starfsfólks. Þjónustan fer að mestu fram í skólunum en starfsfólkið hefur skrifstofu- og fundaraðstöðu í Ráðhúsi Árborgar. Mikil áhersla er lögð á samstarf ýmissa ráðgjafa og fagaðila sem koma að þjónustu við börnin í Árborg.