Foreldraráð Strandheima
Hlutverk foreldraráðs
Foreldraráð veitir foreldrum tækifæri til að hafa áhrif á starfsemi leikskólans og stuðlar að samstarfi foreldra og leikskólastjórnenda með hagsmuni og velferð barna að leiðarljósi.
Foreldraráð:
- Gefur umsagnir um skólanámskrá, starfsáætlun og aðrar áætlanir sem varða starfsemi leikskólans.
- Fylgist með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana og því að þær séu kynntar foreldrum.
- Hefur umsagnarrétt um allar meiri háttar breytingar á leikskólastarfi.
- Kemur sjónarmiðum og hugmyndum foreldra á framfæri við leikskólastjórnendur og viðeigandi nefnd sveitarfélagsins.
Starf foreldraráðs
- Fundar með leikskólastjóra um starfsemi leikskólans og málefni sem varða barnahópinn í heild.
- Fer yfir áætlanir leikskólans, ræðir þær og mótar umsagnir.
- Setur sér starfsreglur.
- Getur átt samstarf við foreldrafélagið og önnur foreldraráð um sameiginleg hagsmunamál barna og fjölskyldna þeirra.
Starfsreglur foreldraráðs Strandheima
Fundargerðir foreldraráðs Strandheima
2026-2027
Fundargerð foreldraráðs - 26. ágúst 2026
2025-2026
Fundargerð foreldraráðs - 21. maí 2026
Fundargerð foreldraráðs - 6. maí 2026