Samstarf heimilis og skóla

Við upphaf leikskólagöngunnar er hornsteinn lagður að samstarfi foreldra og leikskóla. Foreldrum gefst tækifæri til að kynnast starfsháttum, hugmyndafræði og námskrá leikskólans. Þeir miðla upplýsingum um barnið, aðstæður þess, reynslu og áhugasvið og fá til baka upplýsingar frá leikskólanum. Á þessum gagnkvæmu upplýsingum byggjast fyrstu skref barnsins í leikskólanum. Framlag foreldra er mikils metið og litið er á þá sem mikilvæga samstarfsaðila.  

Aðalmarkmið foreldrasamstarfsins er að eiga traust og opin samskipti við alla foreldra, að foreldrar finni að þeir eru alltaf velkomnir með börnin sín í leikskólann og geti talað við starfsfólk um málefni barnsins og það sem getur haft áhrif á líðan þess. Einnig að veita foreldrum upplýsingar um þroska barnsins og stöðu þess í leikskólanum. Lögð er áhersla á trúnað og traust og opin dagleg samskipti við alla foreldra. 

Markmið og áherslur Strandheima eru: 

  • Að huga að velferð barnanna og hafa hana að leiðarljósi 
  • Að eiga góð samskipti og samvinnu við foreldra  
  • Að upplýsingaflæði milli skóla og heimila sé gott 
  • Að skapa traust milli foreldra og skóla 
  • Að stuðla að þátttöku foreldra í skólastarfinu 

Leiðir að markmiðum eru bæði í gegnum dagleg- og formleg samskipti. 

 

Dagleg samskipti við foreldra eru dýrmæt í starfi skólans. Dagleg samskipti eiga að einkennast af ánægju og vilja til samvinnu og samstarfs. Tíðust samskipti fara fram þegar foreldrar koma með börn sín og sækja þau í leikskólann, mikilvægt er að sá tími sé nýttur til samskipta. Í daglegum samskiptum þegar komið er með barnið og það sótt, er lögð áhersla á að taka vel á móti því og foreldrum og kveðja í lok dags. 

  • Við bjóðum góðan daginn alla daga 
  • Heilsum barni með nafni 
  • Í lok dags er barnið kvatt og þakkað fyrir daginn 
  • Foreldrum stendur ávallt til boða að fá viðtalstíma við leikskólastjóra, sérkennslustjóra og deildarstjóra þegar þeir óska eftir því 

 

 Formleg samskipti: 

  • Kynningarfundur með foreldrum nýrra barna  
  • Foreldraviðtal við upphaf  leikskóladvalar 
  • Kynningarfundir/foreldrafundir eru haldnir að hausti fyrir foreldra á báðum starfsstöðum í Æskukoti og Brimveri. Þar sem skólastarfið er kynnt og foreldrar fá kynningarbækling, skóladagatal og dagsskipulag deilda.  
  • Foreldraviðtöl eru tvisvar á skólaárinu, á haustönn og vorönn. Skráningar í Heilsubók barnsins eru gerðar í október og mars og eru foreldraviðtöl tekin í kjölfar skráningar þar sem foreldrar hitta deildarstjóra og/eða sérkennslustjóra.  
  • Fréttir/tilkynningar eru ýmist settar á heimasíðu leikskólans, á tilkynningartöflur deilda og/eða sendar með tölvupósti 
  • Tölvusamskipti  / samskipti í gegnum samskiptaforritið Völu
  • Opið hús – fjölskyldukaffi – tengt þemastarfi – myndlistasýning 
  • Jólaball – haldið í Barnaskólanum á Stokkseyri. Jólaball fyrir alla í Strandheimum þar sem foreldrar, afi, amma og systkini eru velkomin. Haldið kl. 15-16 á leikskóladegi í desember. Gert er ráð fyrir að foreldrar fylgi sínu barni/börnum á jólaballið. Jólaballið er haldið í góðri samvinnu við nemendur og starfsfólk Barnaskólans. 
  • Vorhátíð  
  • Útskrift elstu barna  
  • Foreldrafélag leikskólans allir foreldrar eru í foreldrafélagi leikskólans. Foreldrafélagið starfar sem traustur bakhjarl leikskólans, markmið þess er að efla samstarf heimila og leikskóla. Foreldrafélagið hefur staðið að aðventuhátíðum, jólaföndri, páskaeggjaleit, gefið nemendum útskriftargjafir og boðið upp á leiksýningar. Foreldrafélagið tekur þátt í skipulagningu vorhátíða og hefur boðið upp á rútuferðir. Foreldrafélagið hefur gert eigin starfsáætlun sem er birt í starfsáætlun leikskólans og tekur þátt í vinnu við gerð skóladagatalsins. Aðalfundur er haldin í september ár hvert.  
  • Foreldraráð er lögboðinn vettvangur foreldra til að koma skoðunum sínum á framfæri við skólastjórnendur varðandi innihald, áherslur og skipulag skólastarfsins. Góð samvinna er með foreldraráðinu sem fundar reglulega yfir skólaárið með leikskólastjóra. Foreldraráð setur sér starfsreglur og eru fundargerðir sendar fræðslunefnd.  Hlutverk foreldraráðs: 
    • Fjallar um og gefur umsögn til leikskólans og fræðslunefndar um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða skólahaldið 
    • Fylgist með framkvæmd áætlana og að þær séu kynntar foreldrum 
    • Kemur á framfæri sjónarmiðum og hugmyndum foreldra til skólastjórnenda og skólanefndar 
    • Starfar með skólastjóra að hagsmunum barnanna og leikskólans