Í Strandheimum verður leikurinn í brennidepli í faglegu starfi næstu misseri. Leikurinn er meginnámsleið barna og í vetur ætlum við að beina sjónum sérstaklega að því hvernig við getum skapað börnum enn betri skilyrði til leiks í daglegu starfi.
Við munum meðal annars skoða skipulag og nýtingu rýma, efnivið, tíma og svigrúm til leiks og hlutverk hins fullorðna í leik barna. Jafnframt verður unnið með tengsl leiksins við námssvið Aðalnámskrár leikskóla, Læsisstefnu og Menntastefnu Árborgar.
Markmiðið er ekki að bæta við fleiri verkefnum heldur að beina sjónum að því sem þegar er kjarninn í leikskólastarfinu – leik barnanna.
Vinnan verður sameiginlegt þróunarferli starfsfólks Strandheima og byggir á samtali, reynslu og því sem við sjáum og lærum af leik barnanna í daglegu starfi.
Við hlökkum til vetrar þar sem leikurinn fær að njóta sín og við fáum að fylgja börnunum í leik, sköpun og uppgötvunum.
Kær kveðja,
starfsfólk Strandheima
