Upplýsingar frá kynningarfundi fyrir foreldra

Kæru foreldrar,

Við viljum þakka þeim sem sáu sér fært að mæta á kynningarfundi leikskólans í vikunni kærlega fyrir komuna.

Hér að neðan má sjá glærukynningu sem haldin var inni í sal í upphafi fundar og fjallaði um starfsemi og stefnur Strandheima. Viljum við hvetja þau sem ekki komust til þess að kynna sér hana.

Deildarstjórar héldu svo sér kynningarfundi inni á deildum þar sem þær fóru yfir starf vetrarins ásamt fleiru.

Kynning fyrir foreldrafund - í vinnslu september '23 (1)

 

Að lokum viljum við nota tækifærið og hvetja til góðrar þátttöku á aðalfund foreldrafélagsins sem haldinn verður í Brimveri, miðvikudaginn 27. september kl. 20 og er sá fundur ætlaður öllum foreldrum í Strandheimum.

 

Hlýjar kveðjur,

starfsfólk Strandheima! 🙂