Kynningarfundir fyrir foreldra 6. og 7. september

Við viljum minna á kynningarfundi starfsstöðva leikskólans sem haldnir verða kl.15-16 eftirfarandi daga:

  • 6. september fyrir foreldra barna í Æskukoti á Stokkseyri
  • 7. september fyrir foreldra barna í Brimveri á Eyrarbakka

Fundirnir verða haldnir í sölum starfsstöðvanna þar sem leikskólastjórnendur og verkefnastjóri verða með kynningu á starfsemi og stefnum leikskólans. Að kynningu lokinni bjóða deildarstjórar foreldrum inn á deildir þar sem þær munu kynna deildirnar og starf vetrarins.

Verið hjartanlega velkomin! 🙂

– starfsfólk Strandheima