Sumarhátíðir Brimvers og Æskukots

Það gleður okkur að tilkynna að við getum staðið við áætlaðar sumarhátíðir þar sem verkfalli var aflétt um liðna helgi.
Hátíðin í Æskukoti á Stokkseyri verður haldin föstudaginn 16. júní og hátíðin í Brimveri á Eyrarbakka verður haldin föstudaginn 23. júní.
Báðar hátíðirnar verða frá kl.14-16 og eru foreldrar hjartanlega velkomnir.
Til að auðvelda starfsfólki yfirsýn munu börnin vera í vestum við upphaf hátíðarinnar. Þegar foreldrar eru mættir á staðinn skila þeir vesti síns barns til starfsmanns deildarinnar til marks um að þeir hafi tekið við umjón þess.
Starfsfólk mun setja upp skemmtilegar útistöðvar og mun foreldrafélagið bjóða upp á veitingar.
Hlökkum til að sjá ykkur! 🙂
Hlýjar kveðjur,
starfsfólk Strandheima