Vinátta í nærumhverfinu

Í Vináttu í nærumhverfinu er lögð áhersla á að börnin fái tækifæri til að mynda og efla vináttutengsl í gegnum leik og sameiginlegar upplifanir. Nærumhverfi Eyrarbakka og Stokkseyrar er nýtt sem vettvangur náms, leiks, hreyfingar og samskipta.

Mikilvægur þáttur verkefnisins er samstarf við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri (BES). Samstarfið styður við tengsl milli skólastiga, gefur leikskólabörnum tækifæri til að kynnast grunnskólaumhverfinu og stuðlar að því að viðhalda tengslum við eldri börn. Í upphafi verkefnisins var meðal annars unnið með Vináttu í tónum og leikjum, þar sem leikur, tónlist og dans voru nýtt til að efla tengsl barnanna.

Áhersla er jafnframt lögð á vináttu og félagsfærni, vellíðan og hreyfingu, málörvun, lýðræði og þátttöku barna, sjálfbærni og tengsl við nærsamfélagið. Samstarf við fjölskyldur og aðra aðila í samfélaginu er mikilvægur hluti af starfinu.

Vinátta í nærumhverfinu fellur vel að leiðarljósum Strandheima – Vellíðan, Sköpun og Virðing – og styður við þá sýn okkar að börn læri og þroskist í gegnum leik, tengsl, þátttöku og fjölbreytta reynslu.

Vinátta í nærumhverfinu – þróunarverkefni Strandheima 2022–2023