Við viljum minna á kynningarfundi starfsstöðva leikskólans sem haldnir verða kl.15-16 eftirfarandi daga:
- 6. september fyrir foreldra barna í Æskukoti á Stokkseyri
- 7. september fyrir foreldra barna í Brimveri á Eyrarbakka
Fundirnir verða haldnir í sölum starfsstöðvanna þar sem leikskólastjórnendur og verkefnastjóri verða með kynningu á starfsemi og stefnum leikskólans. Að kynningu lokinni bjóða deildarstjórar foreldrum inn á deildir þar sem þær munu kynna deildirnar og starf vetrarins.
Verið hjartanlega velkomin! 🙂
– starfsfólk Strandheima