Hvað var gert á Haustþingi?

Haustþing 8. deildar FL og FSL var haldið á Hvolsvelli, föstudaginn 29. september sl.

Þar gafst starfsfólki leikskóla á Suðurlandi tækifæri á að taka þátt í málstofum og menntabúðum og var framboðið glæsilegt að vanda.

Dagurinn byrjaði á fyrirlestri með Önnu Grétu Guðmundsdóttur og fjallaði um áhrif umhverfis á leik barna.

Því næst tóku við málstofur sem starfsfólk gat valið um og voru eftirfarandi málstofur í boði:

  • Samskipti í leikskólasamfélaginu með Bergrúnu Ísleifsdóttur
  • Aðgát skal höfð í nærveru barna með Katrínu Katrínardóttur
  • Faglegir leiðtogar í lærdómssamfélagi með Halldóru Guðlaugu Helgadóttur
  • Hreysti í dag – hreysti til framtíðar með Sabínu Steinunni Halldórsdóttur
  • Ærslaleikur ungra barna með Hugrúnu Helgadóttur

Að loknum hádegismat fóru fram menntabúðir í glæsilegu húsnæði leikskólans Öldunnar á Hvolsvelli.

Eigið þið leið hjá þar einhvern tíman hvetjum við ykkur til að skoða lóð leikskólans með börnunum ykkar.

Hér er listi yfir menntabúðirnar sem í boði voru:

  • Tónlist með elstu börnunum
  • Vináttuverkefni Barnaheilla
  • Skipulag Lubbastunda
  • Leikur að læra
  • Sögupokar
  • Á allra færi
  • Kamishibai, japönsk frásagnarhefð

Dagskráin endaði svo á fyrirlestri með Theodór Francis og bar yfirskriftina Samskipti og sjálfsmynd.

Leikskólinn Strandheimar þakkar skipulagsnefnd Haustþingsins fyrir frábæra dagskrá og gott utanumhald.