Kæru foreldrar!
Vegna þess hve góð mæting hefur verið á aðventustundina okkar undanfarin ár hefur stjórn foreldrafélagsins ákveðið að færa viðburðinn af leikskólanum og halda hann í stærra húsnæði. Það er einfaldlega orðið svo góð þátttaka að leikskólinn rúmar ekki lengur alla gesti. ❤️
Ákveðið hefur verið að aðventustundin verði haldin til skiptis á tveimur stöðum, annað hvert ár í íþróttahúsinu á Stokkseyri og hitt árið á Eyrarbakka.
Í ár verður aðventustundin haldin í íþróttahúsinu á Stokkseyri. 🎅
Við erum virkilega ánægð með hversu vel viðburðir á vegum foreldrafélagsins hafa verið sóttir og vonum að sú góða þátttaka haldi áfram.
Hlökkum til að eiga notalega stund með ykkur öllum! ❤️
Stjórn foreldrafélagsins

