Skólaþjónusta
Auk þess að starfa eftir Aðalnámskrá leikskóla og lögum um leikskóla starfar leikskólinn einnig eftir Menntastefnu Árborgar.
Metnaður, virðing, vinátta og gleði eru grunngildi menntastefnunnar og eiga að vera sýnileg innan lærdómssamfélagsins.
Markmið stefnunnar er m.a. að:
- Nemendum og starfsfólki líði vel í skólanum og að samskipti séu jákvæð
- Fjölbreyttar námsleiðir, frumkvæði, samvinna og nýsköpun
- Samvinna og samkennd einkenni skólasamfélagið
Skólaþjónusta Árborgar er í samstarfi við alla leikskóla í Árborg og býður upp á ráðgjafateymisfundi einu sinni í mánuði þar sem deildarstjórum gefst kost á að fá ráðleggingar frá hjúkrunar-, sál,- og talmeinafræðingum. Einnig kemur kennsluráðgjafi í fjölmenningu einu sinni í mánuði í heimsókn í alla leikskóla. Leikskólaráðgjafi er einnig starfandi innan skólaþjónustunnar og sinnir áhorfi og leiðbeiningum innan leikskólanna.