Eins og þið hafið eflaust séð er í gangi nafnasamkeppni hér í Brimveri/Æskukoti.
Opið er fyrir tillögur að nýju nafni til og með 15. mars og hvetjum við ykkur til að senda inn á brimver@arborg.is. Merkt: Nafnasamkeppni. Upplýsingar um sendanda, heimilisfang og símanúmer þarf að fylgja með.
Hugmyndin að baki nafnasamkeppninnar er að fá eitt fallegt sameiginlegt nafn á leikskólann sem hélt báðum sínum upprunalegu nöfnum þegar hann var sameinaður árið 2011.
Starfsstöðvarnar munu áfram halda sínum nöfnum þannig að við höldum í söguna og þau fallegu nöfn sem leikskólarnir höfðu áður.
Leikskólinn X, starfsstöðin Brimver á Eyrarbakka og Leikskólinn X starfsstöðin Æskukot á Stokkseyri.
Með kærri kveðju, starfsfólk Brimvers/Æskukots