Framkvæmdir í báðum starfsstöðum leikskólans

Eins og hefur líklega ekki farið fram hjá ykkur eru talsverðar framkvæmdir í gangi í Brimveri. Núna er komið að því að hefja vinnu inni í bíslaginu sem er búið að byggja og því hefur verið lokað fram á klósettin hjá börnunum á Merkisteini. Á meðan á framkvæmdum stendur munu börnin þar fá að nýta klósettaðstöðuna á Kötlusteini 🙂
Við þökkum þolinmæði ykkar og barnanna ykkar og vonum að framkvæmdir gangi hratt og örugglega en búast má við að þær taka um það bil 3 mánuði 🙂
Í gær komu einnig verktakar að gera við rúður á Bátakletti, en tvær þeirra höfðu byrjað að leka í einu óveðranna um daginn. Við þökkum skjót viðbrögð Sveitarfélagsins við beiðnum okkar þegar þörf er á viðgerðum.
Með kærri kveðju,
starfsfólk Brimvers/Æskukots