Foreldrafélag Strandheima
Hlutverk foreldrafélags:
- Vera samstarfsvettvangur foreldra - allir foreldrar eru hluti af foreldrafélagi leikskólans.
- Stuðla að góðum skólaanda m.a. með því að vinna að öflugu félagslífi í leikskólanum.
- Stuðla að auknum kynnum barna, foreldra og starfsmanna skólans.
- Koma á framfæri sjónarmiðum og hugmyndum foreldra varðandi leikskólastarfið til skólastjórnenda og foreldraráðs.
- Foreldraráð samanstendur af stjórn foreldrafélagsins.
Verkefni foreldrafélags:
- Skipuleggja viðburði í samstarfi við leikskólann.
- Styðja og hvetja deildarfulltrúa til að efla deildaranda og foreldrasamstarf á hverri deild.
- Koma á umræðu- og fræðslufundum fyrir foreldra um uppeldis- og leikskólamál.
- Veita leikskólanum lið í að bæta aðstæður til leiks og náms.
- Sitja fundi með foreldraráði og skólastjórnendum um skólastarfið.
- Taka þátt í samstarfi við önnur foreldrafélög og samtök foreldra á sínu svæði.
- Taka þátt í landsamtökum foreldra.
Foreldrafélög hafa verið tvö við leikskólann, í Brimveri og Æskukoti, á aðalfundi sem haldinn var 27. september 2017 var kosið um sameiningu foreldrafélaga. Niðurstaðan varð sú að bæði félög samþykktu sameiningu. Stjórn foreldrafélaganna skipast úr röðum foreldra og á hver deild að eiga fulltrúa í stjórn félagsins og skipta þeir með sér verkum. Á aðalfundi var samþykkt að kjósa í stjórn fyrir hvert nýtt skólaár á aðalfundi sem haldinn verði í september ár hvert.
Foreldrafélagið er með facebook-hóp sem ber heitið Foreldrafélag Strandheima | Facebook og hvetjum við alla foreldra til þess að ganga inn í hann.
Stjórn foreldrafélagsins 2023-2024
Formaður
Birna Björnsdóttir, Bátakletti
Gjaldkeri
Edda Bára Höskuldsdóttir, Fiskakletti
Ritari
Elísa Guðlaug S. Bjarkardóttir, Merkisteini
Meðstjórnandi
Una Guðrún Gautadóttir, Kötlusteini