Almennar upplýsingar
Símanúmer Strandheima
Stjórnendur
Leikskólastjóri: 480 6352
Aðstoðarleikskólastjóri: 480 6353
Sérkennslustjóri: 480 6355
Brimver - Eyrarbakki
Merkisteinn: 480 3275
Kötlusteinn: 480 3274
Æskukot - Stokkseyri
Bátaklettur: 480 6356
Fiskaklettur: 480 6357
Í öllum tilfellum er gert ráð fyrir því að veik börn séu heima. Miðað er við að þau börn sem koma í leikskólann geti tekið þátt í öllu daglegu starfi dagsins, bæði úti og inni. Veikist barn í leikskólanum er hringt í foreldra þeirra og þau beðin um að sækja barnið eins fljótt og kostur er.
Ekki er gert ráð fyrir að börn séu inni sem fyrirbyggjandi ráðstöfun.
Mælst er til þess að barnið sé hitalaust í amk. einn sólahring áður en það mætir aftur í leikskólann eftir veikindi.
Afmælisdagurinn er stór dagur í lífi barnsins og við leggjum áherslu á að gera daginn sérstakan í leikskólanum. Afmælisbarnið fær að vera í öndvegi og að sjálfsögðu syngjum við afmælissönginn saman.
Við biðjum foreldra um að senda afmælisboð eftir öðrum leiðum en í gegnum leikskólann. Þannig komum við í veg fyrir að börn upplifi sig út undan þegar boðið er í afmæli og tryggjum jafnframt að boðin komist örugglega til skila.
Almennt eru lyf ekki gefin börnum á leikskólatíma. Ef barn þarf nauðsynlega á lyfjagjöf að halda meðan á dvöl þess í leikskólanum stendur, til dæmis vegna langvinnra veikinda eða sérstakra aðstæðna, er mikilvægt að foreldrar hafi samband við stjórnendur leikskólans. Þá er farið yfir fyrirkomulag lyfjagjafar og tryggt að viðeigandi upplýsingar liggi fyrir.
Ef barn slasast í leikskólanum er brugðist við eftir eðli og alvarleika slyssins. Minni sár og meiðsli eru meðhöndluð í leikskólanum.
Ef þörf er á frekari aðhlynningu er haft samband við foreldra og þeir beðnir um að fara með barnið til læknis eða á slysamóttöku. Ef um alvarlegt slys er að ræða er hringt í 112 og óskað eftir sjúkrabíl.
Slys eru skráð samkvæmt verklagi leikskólans og slysaskýrsla gerð þegar við á.
Börn í leikskólum Sveitarfélagsins Árborgar eru tryggð meðan á dvöl þeirra í leikskólanum stendur.
Þegar komið er með barn í leikskólann og þegar það er sótt er mikilvægt að láta starfsfólk deildarinnar vita. Þetta á einnig við þegar komið er með barn eða það sótt á meðan börnin eru í útiveru.
Ef annar en foreldri eða forráðamaður sækir barnið þarf að láta starfsfólk vita fyrirfram. Af öryggisástæðum er ekki æskilegt að börn yngri en 12 ára sæki barn í leikskólann.
Koma og brottför barna er skráð rafrænt. Skráningin er mikilvægur þáttur í að tryggja öryggi barnanna og að starfsfólk hafi á hverjum tíma réttar upplýsingar um hvaða börn eru í leikskólanum.
Af öryggisástæðum er mikilvægt að hliðin að leikskólalóðinni séu alltaf lokuð, hvort sem börnin eru úti eða inni.
Við biðjum foreldra og aðra sem koma með eða sækja börn að gæta þess að loka hliðunum vel á eftir sér og láta aðra sem sækja barnið vita af þessari reglu.
Börnum finnst oft spennandi að fá að opna hliðin sjálf, en til að tryggja öryggi allra gildir sú regla í Strandheimum að fullorðnir opna og loka hliðunum – ekki börnin.