Menntastefna Árborgar 2024-2030
Auk þess að starfa eftir Aðalnámskrá leikskóla og lögum um leikskóla starfar leikskólinn einnig eftir Menntastefnu Árborgar.
Vegur til visku og velferðar
Meginmarkmið menntastefnunnar er að veita öllum börnum og unglingum í Árborg jafnan aðgang að framúrskarandi og inngildandi menntun og frístundastarfi í öruggu, fjölbreyttu og áhugahvetjandi umhverfi. Börn og unglingar hafi jöfn tækifæri til að þroska og rækta hæfni sína í n´mai og leik og njóti farsældar í daglegu lífi þar sem áhersla er lögð á virðingu fyrir einstaklingnum og umhverfinu, jákvæða sjálfsmynd, vellíðan og góða félagsfærni (úr Menntastefnu Árborgar)