Nafnasamkeppni

Fræðslunefnd Sveitarfélagsins Árborgar hefur samþykkt að efna til nafnasamkeppni vegna leikskólans Brimvers/Æskukots á Eyrarbakka og Stokkseyri. Er ætlunin að leikskólinn fái eitt nafn í stað tveggja samsettra.  

 

Tillögum að nafni leikskólans skal skilað í tölvupósti á netfangið brimver@arborg.is merkt: Nafnasamkeppni. Upplýsingar um nafn, heimilisfang og símanúmer sendanda þarf að koma fram.  

 

Verðlaun eru í boði fyrir þá tillögu sem verður fyrir valinu en nafnasamkeppnin er öllum opin og eru íbúar á öllum aldri hvattir til að taka þátt.  

 

Frestur til að skila inn tillögum er til og með þriðjudeginum 15. mars næstkomandi. 

 

Látið ljós ykkar skína! 🙂

 

Með kærri kveðju,

starfsfólk Brimvers/Æskukots