Merkisteinn flytur aftur í Brimver

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að í dag höfum við ferjað allt okkar dót úr Vesturveri aftur yfir í Brimver. Börnin á Merkisteini mæta því aftur í Brimver á morgun eftir rúma tvo og hálfan mánuð í burtu! 🙂 Mikið verður gott að sameinast Kötlusteini á ný og fá að njóta þess að vera í leikskólanum og á leikskólalóðinni okkar. Tilveran í Vesturveri hefur þó gengið vonum framar og á starfsfólkið okkar stórt hrós skilið fyrir jákvætt og lausnamiðað hugarfar. Börnin hafa svo sannarlega fengið að njóta sín og hefur hugmyndaflugið og sköpunin gefið leiknum byr undir báða vængi.
Framkvæmdunum á Merkisteini er þó ekki alveg lokið og viljum við því biðja ykkur um að koma með börnin inn um anddyri Kötlusteins í fyrramálið. Þau verða svo með aðstöðu inni í salnum þar til framkvæmdum líkur auk þess sem ætlunin er að njóta útiveru eins mikið og mögulegt er.
Kæru foreldrar, takk fyrir auðsýnda þolinmæði og gott samstarf í gegnum þessar breytingar, það hefur skipt sköpum.
Með góðri kveðju,
stjórnendur Strandheima