1. Grein
Reglur þessar gilda um starfsemi foreldraráðs og samskipti þess við skólastjóra, foreldrafélag, fræðslunefnd, skólaskrifstofu og landssamtök foreldra. Þær öðlast gildi við undirskrift þar til bærra fulltrúa í foreldraráði. Skólastjóri sér um að starfsreglur foreldraráðs séu kynntar foreldrum, m.a. með með birtingu í skólanámskrá og á upplýsingavef skólans. Foreldraráð hefur svæði á heimasíðu skólans til að kynna starfsemi sína og þar skulu einnig koma fram nöfn og netföng fulltrúa í foreldraráði.
2. Grein
Foreldraráð starfar skv. ákvæðum 11. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008. Í foreldraráði eiga sæti a.m.k. 2 fulltrúar frá báðum leikskólum, Brimveri og Æskukoti, og reynt að hafa 1 fulltrúa frá hverri deild. Óskað eftir fulltrúum á kynningarfundum beggja leikskólanna sem haldnir eru að hausti. Á sameiginlegum aðalfundi foreldrafélags og foreldraráðs er farið yfir starfsemi ráðsins á liðnu starfsári. Á aðalfundi veitir skólastjóri upplýsingar varðandi starfsemina og skólahald almennt, breytingar á henni og þróun. Aðalfund skal vera búið að halda fyrir 1. Október.
3. grein
Í upphafi skólaárs skal foreldraráð setja sér starfsáætlun og birta hana á heimasíðu skólans. Foreldraráð afhendir skólastjóra afrit af erindum og umsögnum er varða skólann og skólahald, þegar þær eru sendar öðrum aðilum. Foreldraráð fær aðstöðu og nauðsynlegan aðgang að skólahúsnæðinu, búnaði og skrifstofuþjónustu, s.s prentun, ljósritun og póstdreifingu eftir því sem frekast er unnt. Fulltrúar í foreldraráði velja sér formann og skipta með sér verkum (formaður- varaformaður- ritari) á fyrsta fundi ráðsins að hausti, fyrir 15. október, og leggja drög að starfsáætlun fyrir næsta skólaár. Formaður foreldraráðs undirbýr fundi og boðar til þeirra með dagskrá.
4. Grein
Þegar skóalnámskrá er endurskoðuð getur foreldraráð, ef þurfa þykir, boðað skólastjóra og aðra starfsmenn skólans til fundar þar sem farið er yfir námskrána, hún skýrð nánar og foreldraráði gefinn kostur á að bera upp fyrirspurnir. Foreldraráð gefur skriflega umsögn um skólanámskrá og skal hún send skólastjóra, fræðslunefnd og stjórn foreldrafélags eigi síðar en 30 dögum eftir að það fær hana til umsagnar. Með umsögn sinni og athugasemdum getur foreldraráðið sett fram tillögur um breytingar á skólahaldi og rekstri skólans og óskað eftir að þær verði teknar til umfjöllunar og afgreiðslu.
5. Grein
Foreldraráð stuðlar að því að skólanámskrá og umsagnir um hana séu birtar á heimasíðu skólans. Foreldraráðið fylgist með að áætlunum skólanámskrár sé framfylgt.
6. Grein
Foreldraráð starfar í náinni samvinnu við foreldrafélag skólans og leitast við að tryggja gagnkvæma miðlun upplýsinga. Fundargerðir hvors aðila skulu vera aðgengilegar. Í fréttabréfum á vegum leikskólans er foreldrafélagi og foreldraráði gefinn kostur á að birta upplýsingar um starfsemi sína.
7. Grein
Foreldraráð heldur fundargerðarbók. Fundargerðir skulu sendar skólastjórnendum, foreldrafélagi og þá skulu þær birtar á heimasíðu skólans. Ritari ber ábyrgð á að senda fundargerðir á samstarfsaðila og að þær séu birtar á heimasíðu skólans.
8. Grein
Ef foreldrar eru ósáttir eða hafa athugasemdir um skólahaldið geta þeir komið athugasemdum til foreldraráðs ef aðrar leiðir eru ófærar. Foreldraráð fjallar ekki um málefni einstakra nemenda, foreldra eða starfsfólks skólans.
9. Grein
Foreldraráðsfulltrúum er skylt að gæta trúnaðar varðandi upplýsingar um einstaklinga, nemendur, kennara eða aðra sem þeir verða áskynja um í starfi sínu. Foreldraráðsfulltrúar skrifa undir þagnareið.
10. Grein
Sé lögum og reglum um leikskóla eða áætlunum um skólahald ekki framfylgt að mati foreldraráðs ber því að tilkynna það til menntamálaráðuneytisins enda hafi ábendingum skólastjóra og/eða fræðslunefndar ekki verið sinnt.
Samþykkt á fundi foreldraráðs þann 16. júní 2016
Starfsreglur á pdf