Við minnum á að 2. janúar er skipulagsdagur og mun starfsfólk taka þátt í sameiginlegri dagskrá með öllum leikskólum Árborgar á Hótel Selfossi fyrir hádegi þann dag, þar sem unnið verður að þróunarverkefni leikskólanna; Hvernig má styðja við farsæld barna í leikskóla?. Eftir hádegi fer fram áframhaldandi innleiðingarferli á Jákvæðum aga. Sjá nánari kynningu á Jákvæðum aga sem send var út 21/12 ’23.
Sjáumst hress og kát miðvikudaginn 3. janúar 2024.
Hlýjar kveðjur,
starfsfólk Strandheima