Alls bárust 28 tillögur í nafnasamkeppninni! :)

Góðan dag kæru foreldrar/forráðamenn
Frábær þátttaka var í nafnasamkeppninni og bárust alls 28 tillögur að nýju nafni frá 38 manns.
Við viljum gera ykkur kleift að taka þátt í valinu og því sendum við ykkur tillögurnar í tölvupósti ásamt útskýringum sem fylgdu nokkrum þeirra.
Vinsamlega lesið vel yfir leiðbeiningar sem fylgja könnuninni og sendið okkur svar ykkar með því að svara áðurnefndum tölvupósti. Starfsfólk leikskólans mun einnig taka þátt í könnuninni.
Í kjölfarið munu þrír elstu árgangar leikskólans fá tækifæri til að hafa áhrif á valið með því að kjósa um þrjú efstu nöfnin.
Mun útkoma þessara kannana ásamt greinagerð fara fyrir fræðslunefnd sem tekur endanlega ákvörðun um nýtt nafn.
Með bestu kveðju, Birna Guðrún leikskólastjóri.