Útinám í Strandheimum

Í upphafi skólaárs hóf störf hjá okkur Eva Björk Friðjónssdóttir leikskólakennari og hefur hún tekið að sér stöðu verkefnastjóra Grænfánans og Heilsueflandi leikskóla. Partur af verkefnastjórn hennar er útinám og hreyfing sem allir nemendur leikskólans eru þátttakendur í og heimsækir Eva hverja deild einu sinni í viku.

Verkefnastjórn Evu fer fram á deildum eins og hér segir:

  • Mánudagar – Fiskaklettur
  • Þriðjudagar – Bátaklettur
  • Miðvikudagar – Merkisteinn
  • Föstudagar – Kötlusteinn

 

Álfaskógur á Eyrarbakka og Vinalundur á Stokkseyri

Útinám barnanna fer fram í formi göngutúra í átt að kunnulegu umhverfi og hafa starfsstöðvarnar fundið sér griðarstað til útináms í báðum þorpum. Börnin á Eyrarbakka ganga í Álfaskóg og börnin á Stokkseyri í Vinalund. Svæðin eru staðsett hjá frisbigólfvöllum þorpanna og tekur gönguleiðin í átt að þeim um 10-15 mínútur. Yngstu börnin fara í styttri gönguferðir í nánasta umhverfi starfsstöðvanna og munu svo með tímanum fara í lengri ferðir í samræmi við getu þeirra og þroska.

Markmið ferðanna er að efla alhliða þroska barnanna og gefa þeim færi á að gleyma sér í leik úti í náttúrunni. Þannig öðlast þau flæðisástand sem stuðlar að örvun skynfæranna og styrkir um leið andlegan, félagslegan, líkamlegan og vitsmunalegan þroska einstaklingsins. Frjáls leikur í náttúrunni hefur því mikið vægi sem og könnun umhverfisins; við leitum að sniglum og pöddum, skoðum blóm, tré og klifrum jafnvel í trjám. Börnin ganga á ójöfnu undirlagi, æfa sig að ganga í röð og hlusta eftir fyrirmælum. Samskipti þeirra á milli öðlast aðra vídd, sem og sýn þeirra á nánasta umhverfi sem gerir það að verkum að sjálfsmynd þeirra og -öryggi styrkist og vináttan fær aukið rými til að blómstra.

Hjálpsemi og vinátta er mikið til umræðu í gönguferðunum og eru börnin hvött til þess að styðja hvort annað ef einhver lendir í vandræðum. Sem dæmi ef einhver dettur, þá eru þau hvött til þess að spyrja; Er allt í lagi? Viltu aðstoð? Viltu knús? Þannig fá þau þjálfun í samkennd og að setja sig í spor annarra.

Börnin taka með sér vatnsflöskur í bakpokum í ferðirnar og hafa kennarar meðferðis segl, sem nýtist sem skjól/tjald, og hengirúm sem Eva hefur útbúið úr gömlum grænfánum. Stundum er nesti tekið með ef um lengri ferðir er að ræða. Fyrir alls ekki löngu fékk leikskólinn bálpönnu að gjöf og mun hún koma að góðu gagni í göngutúrum framtíðarinnar og aldrei að vita nema útbúið verði kakó eða grillaðar verði samlokur.

Fatnaður

Góður fatnaður skiptir höfuðmáli í gönguferðunum, sérstaklega í vetur og viljum við nota tækifærið og mæla með að börnin klæðist þunnri ull næst líkamanum, svo flís og þar næst kuldagalla eða utanyfir buxum og jakka. Gott er að hafa ullarháls um hálsinn, góða húfu og vettlinga. Ullin helst álíka heit hvort sem hún er þurr eða blaut, en þegar bómullarfatnaður blotnar þarf líkaminn að nota orku til að hita hana og þurrka.

Lykilatriði er að hafa klæðnað eftir veðri og muna að hægt er að njóta útiveru sama hvernig veðrið er svo lengi sem klæðnaðurinn er réttur.